Skip to content

Samskipti við stjórnvöld

Umsagnir um opinber mál

Samtök ferðaþjónustunnar áttu í talsvert meiri samskiptum við stjórnvöld en á hefðbundnu starfsári vegna faraldursins. Samskiptin hafa m.a. farið fram með formlegum erindum og  formlegum og óformlegum fundahöldum, t.d. með erindisrekstri fyrir félagsmenn gagnvart ráðuneytum og stofnunum. Þá eru ótalin ýmis formleg og óformleg samskipti starfsfólks og stjórnar SAF við stjórnmálamenn og stjórnsýsluna.

Mikilvægur þáttur í formlegum samskiptum SAF við stjórnkerfið er að samtökin veita umsagnir um fjölmörg opinber mál árlega. Umsagnir sem SAF veita um mál eru aðgengilegar á vef Alþingis, á Samráðsgátt stjórnvalda og á vefsvæðum stofnana og sveitarfélaga. 

Umsagnir sem veittar voru á starfsárinu eru einnig aðgengilegar á vef SAF. Alls sendu SAF inn, í eigin nafni og í samstarfi við önnur samtök, 43 umsagnir til stjórnvalda um frumvörp, reglugerðir, stefnur og fleira. Sjónarmiðum SAF um hin ýmsu málefni hefur því verið komið til skila til stjórnvalda. 

Erlent samstarf

Samstarf við systursamtök í Evrópu og á Norðurlöndum

Hluti af starfi Samtaka ferðaþjónustunnar er að bera saman bækur sínar um starfsumhverfi greinarinnar við systursamtök á sviði ferðaþjónustu á Norðurlöndunum. Samskipti af þessu tagi eru afar gagnleg þar sem upplýsingar sem þar koma fram nýtast í samræðum og rökfærslum um starfsumhverfi ferðaþjónustunnar hér á landi.

Nordisk besöksnäring 

Vegna aðstæðna og ferðatakmarkana í kjölfar kórónuveirufaraldursins var formlegum fundum frestað á starfsárinu en framkvæmdastjóri SAF hefur sótt rafræna fundi þar sem upplýsingum hefur verið miðlað milli samtaka. Umræður hafa m.a. snúist um vinnumarkaðsúrræði stjórnvalda á Norðurlöndum, stuðningsaðgerðir til að halda fyrirtækjum gangandi og tækifæri og áskoranir í væntanlegri viðspyrnu. 

HOTREC

SAF eru formlegur aðili að evrópsku hótel- og veitingasamtökunum HOTREC. Formlegum fundum á fyrri hluta starfsársins var frestað en boðið hefur verið upp á nokkra netfundi vegna stöðunnar. Ársfundur að vori var haldinn rafrænt en framkvæmdastjóri og formaður gististaðanefndar sóttu ársfund að hausti sem haldinn var í Frakklandi í desember 2021. SAF hafa verið i töluverðum samskiptum við HOTREC vegna upplýsinga og samanburðar á aðgerðum Evrópulandanna og nýtt þau gögn í samskiptum við stjórnvöld hér á landi. Segja má að samstarfið við HOTREC hafi sannað sig vel á meðan á faraldrinum hefur staðið, bæði varðandi upplýsingagjöf og þrýsting á aðgerðir og ákvarðanir af hálfu stofnana Evrópusambandsins sem hafa haft áhrif hér á landi.

Nordisk persontransport

Hætt var við alla formlega fundi starfsársins á samstarfsvettvangi Norðurlanda um fólksflutninga. Allmargir netfundir hafa verið haldnir þar sem rætt hefur verið um stöðu aðgerða og viðspyrnu. Einnig hefur verið rætt um aðgerðir og opinbert regluverk gegn ólöglegri starfsemi hópbifreiða þegar viðspyrna hefst.

NordPass – Nordisk Passagerarbåt Förening 

Samtök ferðaþjónustunnar eru aðilar að samtökum útgerða með farþegabáta (Nordpass). Samtökin hittast á hverju hausti en vegna aðstæðna var hætt við fundinn árið 2021 sem vera átti í Helsingör í Danmörku. Í stað þess er gert ráð fyrir að  fundur ársins 2022 verði á sama stað. SAF hafa þó átt í talsverðum óformlegum samskiptum við aðila innan Nordpass og leitað upplýsinga um fyrirkomulag ferjusiglinga, mönnun, öryggisstjórnun, búnað o.fl. sem nýst hafa í samræðum og samskiptum við Samgöngustofu um fyrirkomulag ferjusiglinga hér við land.

IÐAN fræðslusetur

Samstarfsvettvangur fyrirtækja og starfsmanna á sviði hótel- og matvælagreina

Matvæla- og veitingasvið IÐUNNAR er samstarfsvettvangur fyrirtækja og starfsmanna á sviði hótel- og matvælagreina. Aðild að matvæla- og veitingasviði eiga SAF, Samtök iðnaðarins (SI) og MATVÍS. Hlutverk matvæla- og veitingasviðs er að stuðla að bættri menntun og hæfni starfsmanna í hótel- og matvælagreinum og vinna að auknum gæðum og framleiðni fyrirtækjanna sem leiðir til betri samkeppnisstöðu þeirra og bættra lífskjara. 

SAF eiga í samstarfi um ýmis verkefni með IÐUNNI, þar á meðal um Starfsgreinaráð matvæla-, veitinga- og ferðaþjónustugreina, sem hýst eru hjá Menntamálastofnun, Norrænu nemakeppnina í matreiðslu og framreiðslu, raunfærnimat í matvæla- og veitingagreinum og vinnustaðanámssjóð.

Félagsmenn fá um 75% afslátt af námskeiðum matvæla- og veitingasviðs IÐUNNAR og reglur um endurgreiðslur og styrki til félagsmanna er að finna á vef IÐUNNAR.